Ég hvet þig eindregið til þess að klára og leggja þetta fyrir þig, ef þú klárar íþróttabrautina, ferð síðan á Laugavatn (eða betra, íþróttanám erlendis, Finnar eru með frábært skólakerfi svo dæmi sé tekið) eru atvinnumöguleikar mjög góðir. Flestir hér á landi með þessa menntun eru að vinna í skólakerfinu á daginn og sinna íþróttinni seinnipartinn og á kvöldin, langur vinnudagur, en við erum jú með einhverja dellu. Til að vinna upp langa daga á veturna er sumarið algjörlega frjálst til að...