Ég á þrjár eldri systur og einn yngri bróðir. Ég var semsagt fyrsti strákurinn sem mamma eignaðist, og móðuramma mín heitin var alveg rosalega ánægð með að mamma hefði loksins eignast strák. Þess vegna kallaði hún mig alltaf ,,litla punginn sinn" þegar ég var lítill. Svo frá því að ég var 4 ára þar til ég var 7-8 ára kallaði ég hana; og ég legg áherslu á kallaði þar sem ég hrópaði þetta yfirleitt þegar að ég sá hana, hvar eða hvenær sem það var, oft fyrir framan fullt af fólki ,,Amma Pung!!"...