Forþjappa og bein innspýting er nú ekki alveg sami hluturinn! Kompressor er græja sem upp á ensku heitir supercharger, oft kallaður blower. Ég er ekki nógu klár á íslenskunni svo við látum það liggja milli hluta. Það sem supercharger gerir er, rétt eins og túrbína eða forþjappa, að þjappa loftinu sem vélin tekur inn á sig og þar með koma meira lofti (súrefni þar með, til að gera meiri bruna mögulegan) inn í brunahólfin. Munurinn á turbo og blower er að turbo notar afgas (útblástursloft) frá...