Sammála..Þetta var þvílíkt dramatískur þáttur, og geggt sorglegur. en mér fannst það samt vera geggt sætt af Katie að klæða sig upp í þennan kanínubúning ;)
1)Hef heyrt að það að drekka mikið vatn geti leyst þetta vandamál hef samt aldrei prófað það 2) held að þú getir keypt eitthvað dót í apótekum til að laga þetta spurðu bara um það(A)
En afhverju er það hallærislegt að klæða sig öðruvísi bara til að vera öðruvísi? Afhverju er það ekki hallærislegt að klæða sig eins og klón af einhverjum öðrum?
Og væri þér alveg skítsama þótt JK Rowling eða Peter Jackson myndu labba framhjá þér? Myndiru virkilega ekki segja öðru fólki að Rowling og Jackson væru á íslandi?
Já! þetta á ekki að þurfa að kosta svona mikið alveg eins og snoop dog það kostar 5900 síðan á maður eftir að redda sér fari upp í Egilshöll strætó=440kr Leigubíl=alveg yfir 1000kr. síðan eru nátturulega sumir sem fá far hjá mömmu og pabba;)
Tíska er bara eitthvað sem verður að vera til… Veit samt ekki alveg afhverju en eins og ef unglings stelpur sjá einhverja sæta stelpu á þeirra aldri sem veður í strákum þá er eins og aðrir stelpur hugsi bara “omg fyrst þetta virkar hjá henni þá hlýtur þetta að virka hjá mér” síðan þá fylgja hinir bara af því að allir aðrir eru svona Þannig að þótt það sé í tísku að klæða sig eins og maður vill þá eru samt allir alveg eins.
Jáhá…Ég lít á mig sem frekar trúaða manneskju samt held ég að það að vera samkynhneigður sé ekki rangt á nein hátt þúst fólkið er bara svona alveg eins og ég er 170cm en einhver annar er kannski 165
Mig langar þvílíkt í eitthvað svona en þar sem engin af vinkonum mínum komust með mér í sumar þá verð ég að bíða þar til á næsta ári:( með hvaða félagi fórstu?
Ég á ennþá eftir eitt ár en mig hlakkar geðveikt til að fara í menntaskóla og skipta algjörlega um umhverfi því sama hversu skemmtilegt fólk er þá eru 10ár með sama fólkinu 5 daga í viku, 9 mánuði ársins bara svolítið of mikið
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..