Sammála, rigning er róandi. Rigning úti á Ítalíu er samt best, þá er ennþá heitt og maður getur bara verið úti á stuttbuxunum ef maður er með regnhlíf, svo kemur bara sól daginn eftir hvort eð er.
Amfetamín, kókaín, lsd, heroín olf. efni innihalda ekki dópamín heldur, þar sem að dópamín er taugaboðefni sem líkaminn framleiðir sjálfur, hinsvegar flest fíkniefni einhvernveginn áhrif á framleiðslu og/eða viðtaka taugaboðfna.
Ríkið á heldur ekkert í bílnum mínum né mér, en ef ég frem umferðalagabrot þá má lögreglan samt sekta mig. Ef þú ætlar að snúa út úr og segja að ég sé á vegi sem ríkið á, þá hefur ríkið lögsögu yfir því svæði þar sem netkaplar, farsímasendikerfi ofl. slíkt er.
Tungumálastöðuprófin eru venjulega þrískipt. Einn hluti er lesskilningur (lesa teta og merkja við rétta krossa), einn er málfræði og einn er ritunarhluti.
Fólk hefur rétt á skoðunum sínum, tík. Þó að hún sé ekki sú sama og þín. Micheal Moore getur haft áhrif á skoðanir fólks, gæjarnir sem gerður Zeitgeist gátu það, þú ættir þannig séð að geta það líka.
Jú, sama hlutfall af skattpeniningum fer til þess trúarsöfnuðs sem þú ert í, hvort sem það er þjóðkirkjan eða ásatrúarfélagið. Ef þú ert síðan ekki skráður í neitt trúfélag fer sama upphæð til HÍ.
Það talaði enginn um að banna netnotkun, hugmyndinn með netlögreglu er að koma í veg fyrir ólöglegt athæfi á netinu, á sama hátt og hlutverk lögreglu er að koma í veg fyrir almenn lögbrot.
Ég treysti því ekki að fullorðið fólk sé nógu þroskað til að fremja ekki glæpi, afhverju ætti það að vera nógu þroskað til að vera td. ekki að skipast á barnaklámi á netinu?
Ég veit ekki hvort þú hafir stundað bankaviðskipti í góðærinu, en það þurfti mikinn viljastyrk til að skrifa ekki undir þau gylliboð sem fólki voru boðin.
Þú veist þó að virðistaukaskattur er í þrepum? Vara er annaðhvort með 7% skatt eða 24,5%, ekki neina tölu þar á milli (nema ég sé að gleyma einhverjum þrepum). Allar vörur sem verða fyrir hækkun fá sömu hlutfallslegu skattahækkun, hversu mikið sem sykurinnihaldið er.
Þú er ekki alveg að skilja þetta, held ég. Þetta virkar ekki þannig að vara sem innhildur mikinn sykur fær 24,5% vsk og vara sem heldur minni sykur (en samt slatta) fær 15% vsk. og vara sem inniheldur engan sykur fær 7%. Vörur með miklum sykri (td. gosdrykkir og nammi) hækka í 24.5% vsk., vsk. á öðrum vörum er óbreyttur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..