Ég tek gagnrýni ekki illa, síður en svo. Ég læri meira af henni. Ég var bara að reyna að klóra í bakkann, en það þýddi greinilega ekki :) Hvað var ég að hugsa?! Það er svo langt síðan ég skrifaði ritgerðina (næstum því ár), ég man það núna að ég var að velta þessu fyrir mér með nafnið á Organon, en lét kyrrt liggja. Og ég viðurkenni að Gunnar Dal er ekki besti heimildamaður fyrir þessi málefni, þó hann sé góður. Ég sé að þú ert einn af umsjónarmönnum hér, og ert greinilega gífurlega fróður....