Er ekki málið bara að fara með gítarinn niður í Rín strax á morgun? Þeir eru með Gibson umboðið og ættu að geta sagt þér hvert þú átt að fara með hann ef þeir laga þetta ekki sjálfir.
Þegar maður festir hálsinn aftur á passar maður að herða ekki of mikið helgur bara svona þéttingsfast. Hálsinn ætti ekki að vera skakkur ef þú kemur honum vel fyrir og skrúfar nógu fast til að hann haldist vel en ekki of fast.
Þetta er það sem pabbi gerði fyrir langa löngu, núna er ég í miðju kafi að mála gítar en það hefur gengið heldur brösulega þar sem ég get bara látið hann þorna á föstudögum og laugardögum í þvottahúsinu, aðra hverja helgi og veðrið hefur ekki verið mér hliðhollt. Gítarinn sem er Dean Evo Playmate verður Silverburst með rauðum og hvítum myndum. Auðvitað pósta ég myndum um leið og ég er búinn. Snorri
Flott safn og flott mynd. Ebhvernig ertu að fíla Marshallinn? ég átti svona magnara og hann var ALLTAF að bila, endaði með því að fá að skipta honum uppí AVT50 á fullu verði.
Ég veit ekki hvort að hausinn sé með effects loop en ef svo er geturu prófað að tengja noise reduction pedalinn þangað þannig að ef suðið er í formagnaranum þá ætti það að hverfa. Ef suðið er hins vegar í kraft magnaranum þá myndi ég láta tékka á honum þar sem þú keyptir hann.
ég er mjög spennntur, veistu um einhver tóndæmi á netinu, eða einhvern distortion pedal sem hann á að sánda eins og? hvar býrðu?get ég fengið að prófa?
Burt með þetta scratchplate og þá er hann sirka 6790 sinnum flottari. Og já Bill Kelliher, Rhythmgítarleikari Mastodon notar held ég bara svona gítar. Brent Hinds Lead gítarleikari átti líka svona Silverburst Flying V en honum var stolið í danmörku
Elite með Deftones: Réttur texti: “When you're ripe, you'll bleed out of control.” Það sem ég hélt fyrstað það væri : “We're gonna rock, come bring your guitar.” Það sem ég hélt svo að það væri: “When your'e ripe, you'll bleed like a torch.” Snorri
“Beauty Like A Grove of Birches, Eyes That Glare Like Burning Churches.” úr laginu Bitch In Black með Sólstöfum Þetta er geðveikt hallærislegt og tilgerðarlegt textabrot en það er alveg fyrirgefið því tónlistin er svöl.
Það er pottþét GuitarCenter í Boston, en… …ef þú ætlar að kaupa eitthvað þar er eins gott að þú vitir hvað þú ætlir að fá og helst búinn að skoða verðin á internetinu og prenta út og taka með því þá geturu prúttað því þeir eru með lowest price guarantee. Þótt þeir séu með ódýrasta verðið þá geturu samt prúttað t.d. ef þu ætlar að kaupa effect srem kostar $80 skaltu bjóða ca $60 og þá kemur hann til móts við þig. Sölumaðurinn verður nefnilega að selja þér hlutinn á það sem þú býður svo lengi...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..