Mér líður alltaf rosalega illa eftir að ég hef hitt hann, því það er bara áminning á hversu æðislegur hann er. En ég er bara rosalega ringluð núna, ég veit ekki hvað ég vil. Mig LANGAR ekki að vera hrifin af honum, ég bara skil ekki hvernig ég get ekki komist yfir manneskju sem ég vil ekki einu sinni byrja með. Og, æji, ég er haldin mikilli félagsfælni. Þori varla að fara út í búð. Ég vil bara ekki vera með manneskju sem heldur aftur af mér og treystir á mig í einu og öllu. Ég vil bara vera ein.