Þótt furðulegt megi virðast miðað við hversu oft ég lendi í óheppilegum aðstæðum, þá er ég aldrei búin að brotna né eitthvað þannig alvarlegt. Hef einu sinni “tognað” á fáránlegasta stað í heimi. Það var víst þannig að ég var að standa fyrir nokkrum ungum trippum, kom eitt þeirra bara ekki og hljóp á mig (ég öskraði og veifaði eins og ég gat, ætlaði ekki að láta þau sleppa) en hrossið bara beinustu leið á mig og ég flaug á grindverkið fyrir aftan mig. Þá náði ég einhvernveginn að togna á...