“Hann er yndislegur Lupin!” skríkti Hermione með augun límd á Trevor sem lá steinsofandi í fangi Lupins. “Takk Hermione, þín eru líka æðisleg,” sagði Lupin brosandi og horfði á tvíburana Lucy og Lucien rökræða um hvort Trevor væri líkari, við hlið móður sinnar. Hermione brosti á móti en fór svo að reyna að stilla tvíburana af. “Svona, komið, ekki vekja litla barnið!” ”Hvernig gengur með kærastanum?” glotti Lupin. “Bara æðislega vel, en hann og ég erum mikið vinnandi en það fer að hægjast...