Ég var í Hagkaup í gær að bíða í röðinni á kassanum, allt í lagi með það, svo kemur að mér og ég var með nokkuð mikið af hlutum því ég var að kaupa inn fyrir mömmu. Vinkona mín er að vinna á kassanum og við byrjum að spjalla meðan hún rennir dótinu í gegn. Þegar hún er ekki einu sinni hálfnuð með að renna mínu í gegn spyr konan fyrir aftan mig: “Bíddu ert þú ekki að vinna?” og vinkona mín svarar, “Jú, ég er að renna í gegn.” “Er það partur af vinnunni þinni að spjalla við vini þína?” “Nei,”...