Með ör á hægri stóru tánni eftir að hafa rekið fótinn inn í aftara hjólið á reiðhjóli á ferð. Með ör neðan á brjóstinu eftir að spöngin á brjóstahaldaranum mínum fór út úr plássinu sínu og ég skar mig. Með eitt á hnénu eftir að ég datt á kantstein og skrapaði burt helminginn af skinninu á hnénu. Með eitt á puttanum eftir að hafa skorið mig við að tálga. Með mörg í viðbót en ég nenni ekki að talja upp fleiri.