Plasti? Ertu viss um það? Jú, það er rétt, þú átt að fá meiri kraft með flækjum líka. Ég myndi mæla með að þú fengir þér kraftsíu frá K&N, held að bílabúð benna selji þær, þá seturu hana í staðin fyrir venjulega síu, hún hleypir meira lofti inn í vélina og þú þarft aldrei að skipta um hana. Síðan er líka gott að fá sér nýjan kubb. Þessir hlutir vinna saman, sían hleypir meira lofti inn, kubburinn nýtir þetta aukna loft og pústið og fljækjurnar skila loftinu betur út.