Mér finnst bara um að gera að leiðrétta fólk, að minnsta kosti þegar það er með mjög bjánalegar og/eða margar villur. En auðvitað geta allir gert smá innsláttarvillur og það á ekkert að vera að æsa sig yfir því. En já annarra er að sjálfsögðu með tveimur ‘errum’
Ég hefði ekki hlegið, það get ég sagt þér. ÉG hefði hins vegar kannski hlegið þegar ég hefði komið heim, en það er þó möguleiki að ég hefði bara tárast með aumingja manninum! ;)
Ef að þeir eru með tvo nemendur með sömu lokaeinkunn en annar var með hærra í samræmda prófinu taka þeir frekar hann inn, skilst mér. Þetta gildir nokkuð jafnt en samt hefur samræmda einkunnin að sumu leiti meira vægi.
Þú ert með 3 einingar, okey. Þú færð þær pott þétt metnar í MH en þú getur ekki gengið að því vísu hjá Versló. Þeir eru með bekkjarkerfi eins og þú veist og til að fá einingar metnar þar þarftu að taka stöðupróf og þarft hreinlega að “brillera” á því til að fá áfangann metinn og hingað til hafa þessi stöðupróf þótt ansi erfið. Ég ætlaði alltaf að sækja um í Versló en svo fór ég að hugsa, ég er með 12 einingar (danska 103 og 203 + þýska 103 og 203) og ég hreinlega tímdi ekki að missa þessar...
Þetta er alveg skelfilegt! Það voru 110 nemendur sem fengu einkunnina 1,0 í stærðfræði! 125 með einkunnina 1,5 og 153 með einkunnina 2,0! En svo eru líka nörd þarna, 98 nemendur fengu 10 í samræmda stærðfræðiprófinu!
Það er enginn sem segir að þú þurftir að vera í þessari unglinavinnu! Findu þér bara eitthvað skemmtilegra ef að þetta er alveg að ganga frá þér dauðum…!
Hann er örugglega stórsniðugur fyrir góða námsmenna sem vilja halda vel áfram í náminu… … og eiga nógan pening. Skólagjöldin eru hátt í 200 þúsund hvor vetur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..