Þarna kemur einmitt rétta “svarið” við því að fatta að skattar eru þjófnaður. Ég segi já, þjófnaður er slæmur í eðli sínu. Hann grefur undan samvinnu manna og gerir fólki kleift að neyta án þess að framleiða.
Fyrir utan það að þjónusta bankana var alls ekki dýr á meðan þeir entust heldur var það einungis gjaldþrot þeirra sem kom illa við okkur þá var aðalvandamálið við bankanna það að þeir höfðu opinberlega tryggingu frá Seðlabankanum(sem er RÍKISstofnun) og gátu þar með tekið helling af lánum sem þeir hefðu annars aldrei fengið að taka. Það var því ekki einkavæðing þeirra sem olli þessu fuck uppi heldur ríkissafskipti í bankageiranum. Btw þú suckar.
Nei. Þú ert hinsvegar að byggja upp strámann. Það að borga skatta og það að lifa í 90 ár tengist bara ekki neitt. Heldurðu virkilega að það væri enginn heilbrigðisþjónusta án ríkisins? Heldurðu að fólk myndi ekki spara sjálft til elliáranna ef að engin væru lögin sem skylda fólk til að greiða í lífeyrissjóði?
Skattar eru þegar að ríkið tekur af þér tekjur og/eða eignir óháð því hvort þú viljir að þeir geri það eða ekki. Ef þú reynir að koma í veg fyrir það koma menn með kylfur heim til þín og henda þér í fangelsi. Ég amk sé það sem þjófnað.
Ef ég fer heim til þín og tek 15.000kr úr veskinu þínu(án leyfis ofc) en skil eftir 3 páskaegg, er það þjófnaður? En ef ég kem og þú ert heim og reynir að stöðva mig en ég geng fram með offorsi og ofbeldi og geri þetta samt, er það þjófnaður?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..