Þessi mynd heillar mig ekki. Hún virðist vera allt of týpísk og ég hef bara eiginlega ekki húmor fyrir svona týpískum myndum. Reyndar gæti Napoleon Dynamite gaurinn híft hana eitthvað aðeins upp, en samt ekki nógu mikið til að ég myndi fara á hana í bíó.
ehh.. eins og ég sagði í hinu svarinu, þá er notendanafnið mitt KORNer, og fólk var einhvern tímann að pæla í því hvort ég fílaði Korn, af því að notendanafnið mitt er Korner.
Ég hef bara lent í því að fólk sé í einhverjum vafa um það hvort ég fíli Korn þar sem að notendanafnið mitt er KORNer. Þannig að ég ákvað að í staðinn fyrir að hafa ekkert í undirskriftinni, þá hjálpa ég allavega því fólki sem pælir í því hvort ég fíli Korn þegar það sér nafnið.
Nei, ég sagði aldrei að það myndi skipta máli. Zidane átti pottþétt að fá rautt spjald, enda eins og ég sagði áður, algjör steypa hjá honum að gera þetta. En það var samt algjör óþarfi hjá Materazzi að láta sig detta, hann þurfti þess ekki.
Það hefðu ekki allir dottið í jörðina með tilþrifum eftir þetta. Ekki séns. Maður hefði kannski aðeins bakkað við þetta. Samt algjör steypa hjá Zidane að gera þetta.
Hahahaha :D Var einmitt að hugsa að vinnuskólinn myndi örugglega taka þetta til, þegar ég leit þarna yfir áður en ég keyrði úr bænum. Þau hafa gott af þessu ;)
Ætli það sé bara ekki þannig að maður hugsar bæði í máli og myndum. Fer eftir því hvað hentar manni best. Lítil börn og heyrnalausir hugsa örugglega bara í myndum af því að þau kunna ekki að hugsa í máli. Blindir hugsa þá væntanlega bara í máli, því að ekki sjá þeir neinar myndir. Við sem erum venjuleg, hugsum þá bæði í máli og myndum því að við höfum bæði.
Þessi grein er ekki góð. Þú segir í byrjun að það sé kjaftæði að þeir hafi verið djöfladýrkendur. Af hverju er það kjaftæði? Þú verður að rökstyðja þetta ef þú segir svona. Svo í lok greinarinnar ertu eiginlega kominn á aðra skoðun en í byrjun. Þá ertu farinn að segja að þeir gætu alveg verið djöfladýrkendur. Þetta er bara algjör steypa hjá þér. Sorry.
ok, ég var bara að segja mína skoðun á þessarri plötu. Ég veit þá allavega að það eru fleiri en ég á sömu skoðun. Ertu annars að reyna að drulla yfir mig og segja að ég segi bara það sama og allir aðrir? Gaurinn var að biðja um skoðanir á plötunni.. eða hvað ertu að reyna að segja með þessum commentum hjá þér? :S
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..