http://www.music123.com/Yamaha-RD8F46W-Rydeen-4-Piece-Drum-Set-i145620.music Þetta snilldartrommusett fæst í Hljóðfærahúsinu (seinast þegar ég vissi) á 90-100 þús. kall, en persónulega myndi ég fá það með shopusa.is þá kostar það 50 þús kall sem er ekki neitt fyrir þessi gæði. Ef þú ætlar að spá í þetta sett myndi ég fara uppí Hljóðfærahús (ef settið er þar enn) og fá að prufa það þar en kaupa það svo af shopusa.is. Kv. Köngull.
Hehe, skondinn. Málið er að í þessu tilviki eiga karlar ekki að hugsa og þar með ekki nota heilann svo að þeir selja ónotaða heila mun dýrara. Kv. Köngull
Sjálfur er ég bassaleikari en mér finnst t.d. cool þegar það er brotið upp þessa “hefð” um að hafa alltaf staðfast allaveganna trommur, gítar og bassa og stundum hljómborð. Þið ættuð einmitt að prófa að sleppa bassaleikara og nota bara hljómborðið kannski í það að spila djúpar nótur. My oppinion. Kv Köngull
Ég kýs líka að kalla mig hippa, er líka stoltur af því og vona að það komi annað svona tímabil. Auðvitað er friður fyrir öllu, af hverju á fólk ekki að njóta friðsins eins og við?? Flott grein. Kv. Köngull
Ég hef heyrt að þetta sé frábært félagslíf og svona og flottur skóli fyrir hippa ;) svo að ég ætla að kíkja þangað þegar mér býðst það. Er ekki annars aðalmálið að líka vel við félagslífið og námsskráina??? Æ ég hef svo sem ekkert mikið vit á þessu. Kv. Köngull
ég hef ekkert pælt í því hvað ég myndi vilja fyrir þetta fyrir utan að ég vill meira en 100 þús fyrir þetta þar sem að það er löngu hætt að selja fullt af þessu. Og ég vill helst álit frá sem flestum
Ég á einn Fender rumble 60. En er reyndar ekki tilbúinn að selja hann fyrr en þá og ef að þú nennir að bíða svo lengi ;), en gangi þér vel annars að finna magnara.
Ég á eitthvern einn notaðann hjálm og eina hershöfðingja húfu sem er ónotuð en lá bara í geymslu allan tíman. Þetta drasl fann ég bara uppi á hálofti eða eitthvað svoleiðis. Kv. Köngull
Það er ábyggilega bara svo ótrúlega lítil eftirspurn eftir þeim eða eitthvað, annars borgar sig oft að kaupa vörur af netinu með t.d. shopusa.is og þaðan af ebay eða music123. Kv. Köngull.
Frábær grein, hafði verið að lesa eitthvað smá um gaurinn rétt áðan. Ég vissi ekkert um hann fyrr en ég las þessa grein, það eina er eru smá stafsetningavillur en annars ekkert sem skiptir máli. Kv. Köngull
Kannski full seint að segja það núna en ofar sagði Parza að Franz Ferdinand væri smáskífa en hún er það ekki, ég er ekki viss með mörkin á smáskífu og ep-plötu og ep plötu og breiðskífu en á Franz Ferdinand disknum eru eitthvað um 13 lög og það er breiðskífa (ef ekki þá eiga ekki allar plöturnar þarna á listanum heima á honum)
Þetta eru ábyggilega frábærar plötur allt saman en ég hefði samt viljað sjá Franz Ferdinand þarna. En samt er frábært að sjá 2 Queen plötur þarna og Ace of Spades
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..