Alltaf á sumrin, allaveganna næstum því alltaf, reynum við að fara saman þangað, bara fastur liður í sumarfríum. Sveitabærinn, svo langt í burtu en svo gaman á leiðinni, bara útaf þér. Alltaf minnir þessi sveit mig á jólin, veit ekki af hverju, það bara gerir það, eins og með alla þessa hluti sem ég get ekki skýrt, eins og af hverju mér þykir svona vænt um þig, af hverju? Við höfum heimsótt sveitina svo oft saman, samt er þetta alltaf nýtt, nýtt umhverfi, nýjir hlutir, allt þetta. Líka...