Það er eins og heimurinn breytist þegar maður lendir aftur heill á húfi hérna heima, hér á Íslandi, kominn frá útlöndum. Og þegar maður horfir á landið, hraunið, grasið, eða skortinn á grasinu, allt koma nær. Svo það besta, þegar maður gengur útúr Leifsstöð, finnur lyktina af morgninum, sólin varla risin, enda er þetta svalur ágústmorgun. Maður er kominn með leið líka á hitanum, fékk nóg af honum seinustu tvær vikurnar. Svo þegar maður kemur heim, allt fínt og vel til tekið, vonda lyktin af...