Hún og Hringur lágu á maganum í hjónaherberginu og flettu í nafnabókum. Þau flissuðu yfir skrýtnum nöfnum. ,,Hvað með Hilaríus?’’ ,,Er það nafn?’’ hann reif bókina af henni og fer að hlægja. Þau flettu í smástund í viðbót þar til Hringur rauf þögnina. ,,Vala’’ ,,Já?’’ ,,Viltu giftast mér?’’ hann sýnir henni silfurhring með litlum, dökkrauðum demanti. Hún gapti. ,,Frekar dey ég…’’ hún leit á hann og brosti ,,…en að segja nei.’’ ,,Er það semsagt já?’’ ,,Já! Af öllu hjarta’’ hún henti sér í...