,,Hvað ertu að gera?’’ spurði hún en gerði enga tilraun til að ýta honum frá. ,,Ertu með ljóst eða dökkt blóð?’’ spurði hann án þess að svara henni ,,Það veit ég ekki! Hvernig veit maður það?’’ ,,Breytistu í dýrið sem bítur þig til blóðs?’’ ,,Ég veit það ekki, mamma mín var mjög trúuð og pabbi líka og þau pössuðu bæði að halda mér frá skepnum sem bitu, ég fékk aðeins að eiga fiska sem gæludýr’’ Hún andvarpaði. ,,Öm, ég skil…’’ hann kinkaði hægt kolli. ,,Þú ert með hvassar augntennur!’’...