Jæja ég ætla að prófa þetta blogg. Jæja, síðasti sólarhringurinn er búinn að vera dálítið óþægilegur. Allavega byrjaði það á júdó æfingu. Áður en ég fór á æfingu hafði ég klippt á mér neglurnar á höndunum til að þær væru ekki að pirra mig, en ég klippti eina of mikið þannig að í öllum hamagagnum á æfingunni þá byrjaði að blæða undan nöglinni, ekkert svakalega samt, heildar blóðmissir var svona 3ml. en þetta var samt svo óþægilegt. Svo þegar við vorum að æfa bragð sem heitir harae-goshi...