Það ætlar ekki af Grindvíkingum að ganga! Fyrr í vetur meiddist miðherjinn Dagur Þórisson og verður ekki meira með í vetur (Bosko Boskovic kom til liðs við liðið en hann hefur ekki byrjað vel, frekar þungur, en kannski rætist úr honum). Fyrirliði liðsins til marga ára og einn leikreyndasti maður liðsins, Pétur Guðmundsson, hefur ekki jafnað sig af meiðslum í ökkla, og hefur hann ákveðið að hvíla það sem eftir lifir vetrar. Bjarni Magnússon, sem einnig er mjög leikreyndur og góð...