Úff, dóttir mín hefur líka verið mikið veik. Fær ALLRAR pestir, búin að þurfa að fara alltof oft á sýklalyf og hefur þurft að nota mikið púst. Þetta versnaði einmitt töluvert þegar hún byrjaði hjá dagmömmu og svo aftur í haust þegar hún byrjaði á leikskóla. Hún hefur samt verið nokkuð brött eftir áramót og lítið lasinn. Þetta virðist vera að eldast af henni (hún er 2,5 ára), vonandi fer þetta líka að eldast af þínum. Ps. Það á ekki af manni að ganga. Það er ekki af manni að ganga :)