Ég er ekki sannkristinn maður, eiginlega frekar trúlaus og mæti aldrei í kirkju. Engu að síður finnst mér ekki á nokkurn hátt réttlætanlegt að brenna kirkjur, alveg sama hvaða forsendur þú færir fyrir því. Öll rökin sem þú hefur sett fram eru veik, svo veik að þau eru varla svara verð. Menningar- og sögulegt verðmæti kirknanna eitt og sér er ómetanlegt, trúargildi þeirra er mér alveg sama um.