Ég hafði nú minnstan áhuga á að vita hvað einkenndi þá, fannst bara svo fyndið hvernig hann orðaði lýsinguna, sagði þá mjög einkennandi, sem auðvitað þýðir ekki neitt :)
Hehe, einmitt. Báðar seríurnar standa fólki til boða með leiðinni sem ekki má nefna. Mig langar samt að panta mér þetta að utan á DVD. Samtölin eru alveg brilliant. Var að enda við að landa fyrri seríunni og horfa á fyrsta þáttinn.
Ég hreinlega neita að nota GG yfir eitthvað annað en Good game. Ef einhverjar gelgjur ætla að stela þessu þá má brenna þær allar á báli fyrir guðlast og syndsemi!
Það er nokkurn veginn þannig sem ég leysi þetta, búinn að selja Bridges. Svo er bara annað vandamál samhliða þessu sem er að Ronaldinho og Viduka eru báðir Fgn. Það væri ekki vandamál ef Ibrahim Said og Riquelme væru ekki líka komnir í liðið hjá mér!
Hehe, mér finnst þetta ennþá skemmtilegasti leikurinn :) Skemmtilegasta save-ið mitt er Atletico Madrid 2001-? sem ég ætla að skrifa um hérna við tækifæri.
Já ég stakk uppá því á sínum tíma að það yrði sett inn í notendaupplýsingar hvenær maður skráði sig fyrst inn, alveg eins og síðast, en það hefur ekkert gerst í þeim málum.
Ég er alveg sammála því að PS3 sé óþægilega dýr en þú getur eiginlega ekki borið hana saman við hvorki XBox eða Wiii því þú ert að fá svo miklu meira fyrir peninginn heldur en í hinum vélum. Stærri HD, þráðlaust net og (amk á pappírunum) mun öflugri vél sem mun verða öflugri með hverri uppfærslunni sem kemur. Svo er bara spurning hvort menn séu tilbúnir að eyða svona miklu í PS3.
Efast um að það verði eitthvað næst þar sem maður er nú útskrifaður :) http://www.hugi.is/metall/images.php?page=view&contentId=2566439 Hér má sjá mynd af manni í action :D
Þess má geta að sjálfur JohnnyB tók Metallica útgáfuna í söngkeppni Menntaskólans á Akureyri veturinn 2004-2005 og rakaði á sig hanakamb að því tilefni. Það dugði þó ekki til þar sem hann fór útaf lagi í Vóóóóóóóóó-a kaflanum í lokin :S
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..