Gömul vinkona mín heitir Ilmur og mér þykir það fallegt nafn en þegar við gengum í barnaskóla þá var hún kölluð flykur, stækja og allt það saman. En hvað með nafn eins og Ari, mjög fallegt og leyfilegt nafn en drengurinn er auðvitað platAri, hlaupAri og það allt saman. Það er alltaf hægt að strýða börnum á hinum og þessum nöfnum hvort sem þau eru leyfileg eða ekki en ég verð að segja fyrir mitt leiti að ég er fegin að þessi nefnd er að störfum því sumt er svo hrikalega fáránlegt.