Mér finnst mikið betra að lesa góða bók en að horfa á þunna og þreytta gamanþætti um heimskan kall og fallegu og gáfuðu konuna hans. Í gær var ég að klára (í annað sinn) Band of brothers bókina (sem þættirnir voru gerðir eftir) og er að bíða eftir að þriðja bókin í Baroque Cycle eftir Neal Stephenson komi til landsins. Það er gott að þjálfa sig í að lesa, hugsa um og ímynda sér hluti en að sitja bara og láta mata sig á sterílum amerískum klisjum.