Jæja, þá er komið að þeim degi sem allir hundaeigendur hræðast mest, en því miður er óumflýjanlegur. Nú á að svæfa besta vininn sökum aldurs og veikinda. Margir sem aldrei hafa átt dýr geta ómögulega skilið hvernig þetta getur verið erfitt, en við dýravinirnir skiljum að við erum að kveðja einn úr fjölskyldunni. Núna sit ég og bíð eftir dýralækninum sem ætlar að koma og gefa henni Tátu minni síðustu sprautuna, sem betur fer heima hjá okkur svo að við getum grafið hana hjá hinum gæludýrunum í...