Já, þetta þykir mér góð grein, því ég hef einmitt verið að velta því fyrir mér að fara í svona aðgerð. Ég veit samt ekki hvort ég læt verða að því strax, í fyrsta lagi af því að sjónin mín er enn aðeins að versna, og einnig af því að ég ætla að prófa að fá mér linsur, því að ég er hrædd um að mér eigi eftir að líða eins og ég sé nakin þegar ég er ekki með gleraugun. En alveg brilliant að fá að heyra frá “sjúklingi” hvernig aðgerðin er, ekki bara lesa bækling… En hvaða flipa varstu að tala um?