Já, ég er mjög sáttur með þessa tónleika, ég missti af Doddanum. Palindrome voru góð fannst mér. Góður söngvarinn fannst mér og skemmtileg lög, einnig var trommarinn allveg trylltur. Noise stóðu allveg fyrir sínu, er ekkert smá spenntur að heyra diskinn þeirra. Einar er þvílíkt góður söngvari finnst mér, góð raddbeiting hjá honum. Lögin sem þeir tóku voru mögnuð og Freak coverið var ekkert smá vel gert hjá þeim. Þar var söngurinn ógeðslega góður, þetta var bara eins og Silverchair að spila...