Múgæsingur verður alltaf svar við þessu og það eina sem fólkið hefur þegar það er ekki hlustað á það. Það reyndar kemur mér á óvart að eins hægrisinnaður og þú ert að þú hafir ekki staðið með kommunum þarna og mótmælt. Ertu ekki á móti aðgerðaleysi stjórnarinnar varðandi Icesave reikningana og hvernig þeir komu fram við kaupþing og ísland með að setja það á hryðjuverkalista? Ert þú tilbúinn að borga þetta með hærri sköttum, sem er alls ekki hægrisinnað, og setja þessi mál bara ofan í skúffu?