Takk fyrir gagnrýnina. Himinn var yfirlístur frá upphafi, hann varð ekki svona við vinnsluna, og þar sem Ixusinn býður ekki upp á mikla stillimöguleika hefði verið erfitt að ná himninum betri. Myndin var tekin í takmarkaðri birtu og þar sem ég notaði ekki flassið þurfti ég að halda henni grafkjurri til að myndin yrði ekki hreyfð, en það tekst sjaldan almennilega án þrífóts, þannig hún var ofurlítið hreyfð. Náði að fiffa það aðeins, en þetta kynni að útskýra gæðavandamálin sem fólk talar um....