Já, ég ætla mér að kvarta um stefnuljós, eða réttara sagt ónot stefnuljósa. Það er ótrúlegt hvað fáir gefa stefnuljós út úr hringtorgum sérstaklega. Ég veit ekki hvað lengi ég beið á einum gatnamótum því að enginn gat drullast til að gefa stefnuljós inn á frárein, fólk sá vel að ég var að biða en gat ekki fyrir sitt litla líf gert þessa litlu hreyfingu og þar með flýta fyri umferðinni. Þetta á alveg sérlega við þegar ekið er út úr hringtorgi, ég bý í Keflavík núna og fyrr á árinu bjó ég á...