Það er eitthvað svo öðruvísi, ég er mjög náin foreldrum mínum, og sérstaklega mömmu, en ég hef aldrei sagst elska þau. Samt geri ég það við kærastann minn. Hef oft pælt í þessu, það er bara öðruvísi að segja það við kærastann heldur en mömmu og pabba, enda viðkvæmari ást þar á ferðinni sem hefur varað í styttri tíma.