Ég gleymdi alveg að segja frá umferðinni! Hún var ótrúleg, vægast sagt. Réttur hvað? Það var bara flautan og málið er dautt eða svona hér um bil. Ég hef aldrei séð jafn mikla kaos. Ég sá t.d. líka bara einu sinni konu keyra. Þegar við vorum í Antalya þá var komin 3 bíla röð á akrein fyrir tvær raðir. Það var frekar spes. Það sem kom mér hinsvegar mest á óvart var að mitt í Antalya, sem er nú svona túristaborg, á miðri götunni sé ég bláfátæka bændur á hestakerru með einum hesti fyrir. Ég sá...