Ég kannast við strák sem var mjög fínn náungi, góður vinur bestu vinkonu minnar og drakk aldrei mikið, bara kannski fyrir böll og svona sem ætti að vera nokkuð eðlilegt. Þetta var semsagt fyrir tveimur árum og honum gekk rosa vel í skóla en svo fór hann að reykja hass, daglega líklegast og er algjörlega freðinn í dag, hann er búinn að falla í öllum fögum í skólanum og er á leiðinni að falla í annað sinn. Það er engann veginn hægt að ná sambandi við hann nema með því að virkilega pikka í hann...