Það er bara misjafnt eftir því hvaða kennara þú færð, hversu mikinn áhuga þú sýnir, hvað þú vilt, hversu langt þú ert kominn. Kennarinn sem ég lenti á sýndi mér næstum aldrei tab, við hlustuðum bara á lögin og pikkuðum þau upp. Og svo var hann alltaf að sýna mér ýmsa tækni og svona ýmislegt afþví að hann vissi líka að það var það sem ég vildi. En vissulega eru kennarar sem nenna ekki að gera neitt annað en að kenna lög af töbum, það er alls ekki málið.