Já, ég skil þig fullkomlega. Kannast vel við svona vandamál (ekki það að ég sé að spila í dropped stillingum, en hef spilað í Eb). Vandamálið er að þú þarft að stilla gítarinn upp fyrir þessa stillingu og þessa strengi. Það er nefnilega þannig með Floyd Rose að þetta er svona “fljótandi kerfi”. Brúin getur farið alveg útum allt eins og þú hefur orðið vitni af. Málið er að aftaná gítarnum, ef þú opnar hann að aftan. Þá sérðu brúnna koma í gegnum body-ið og þar eru (oft þrír) gormar festir í...