Vá, ég hef aldrei heyrt þessar staðalýmindir. Finnst að stelpur geti alveg spilað á öll þessi hljóðfæri, hefði frekar sagt að staðalýmind um bassaleikara væri að þeir væru feitir og stórir en ekki slánalegir. Gítarleikarar eru vanalega litnir sem egófrík og höfuð hljómsveitarinnar, ég hef ekki séð mikið af því… því miður. Trommarar, þeir eru af öllum gerðum, veit ekki með einhverja staðalýmind þar. Og svo áfram, þannig að ég er ekki alveg að samþykkja þessa kenningu hjá þér.