Ég er í svona stöðu núna og það er ömurlegt. Er búinn að vera með sömu stelpunni í aðeins meira en 2 ár en mér finnst núna eins og ástin sé að dafna. Málið er að ég veit að hún elskar mig rosalega mikið, og ég veit ekki hvernig í ansk. ég á að hætta með henni. Mér þykir alveg mjög vænt um hana en ég hef bara fengið nóg af þessu sambandi. Ef heimurinn væri fullkominn villdi ég að við gætum bara hætt saman og verið góðir vinir en ég sé að hún á eftir að vera sár, og ég vill það ekki…hafiði einhver ráð?