Ég lék þrjú hlutverk í þessari mynd, í einu eru góðu gaurarnir á ráðast á vondu og Sveppi var þá klæddur alveg eins og Neo í Matrix, ég sagði honum að það væri heiður ef hann gæti drepið mig í atriðinu. Svo þegar það var sagt ‘action’ hjóp hann á mig og tæklaði mig niður, þutum við báðir á jörðina og hélt hann síðan áfram að öskra eins og stríðsmaður og lemja í mig þangað til það var sagt ‘cut’. Pétur kom þá (klæddur eins og Obi Wan Kenobi Episode 1 style) og var frekar fúll út í Sveppa...