Þú ferð vel af stað, en fatast svo flugið. Mér finnst stafsetningin ekki vera sérstaklega til vandræða, skil þó engan vegin síðustu línuna í fyrsta erindi. Heilt yfir þá finnst mér ljóðið missa marks og síðasta línan virkar á mig eins og hálf máttlaus tilraun til að slá lesandann. Þú virðist hins vegar hafa fínt hugmyndaflug og gætir vel orðið mjög frambærilegt skáld með nægri æfingu.