Já kannski. En það er svona smá línur þarna á milli, kannski það skiptir máli í hvernig skjá maður sér þetta en ég get náttúrulega ekkert séð hvernig þetta er hjá þér. En takk fyrir þetta, maður nýtir þetta í næsta verk ;)
Flestir setja það inn að þeir vilja fá gagnrýni nema ef að þeim finnst myndin vera tilbúin og vilja ekkert meira gera við hana, þá getur verið erfitt að sjá alla gallana seinna afþví að einhver sagði manni það. Og svo eins og þú sagðir, útaf tilfinningalegum ástæðum. Kannski er þetta verk mjög kært viðkomandi og vill ekki að það sé verið að tala ‘illa’ um það. Fólk á samt að virða það ef að það er svona eins og t.d. á deviantart þá er hægt að merkja við það og það kemur fyrir ofan þar sem...
Eða sko, tveir lentu í þvottavélinni og dóu en svo lenti annar en það var ekki búið að kveikja á vélinni þegar ég fattaði það :) Þannig að hann er í góðum gír.
Það er of seint núna en ég hef misst tvo og hálfan síma í þvottavélina, er farin að skoða í vasana núna :P Besta er að taka hann eins mikið í sundur og hægt er og skella honum á ofn. En ég mundi halda að hann sé alveg ónýtur núna en tjah, kannski ertu heppinn :)
Það kemur svona popup sem stendur með svona appelsínugulum stöfum, you have now safely turned off the internet eins og var alltaf í windows. Gerist ekkert annað :)
1. Ég er reyndar bara enn í grunnskóla og vinn í unglingavinnunni :) 2. Mig langar ótrúlega að vera bara svona concept artist eða svoleiðis fyrir t.d. teikni/bíómyndir og tölvuleiki en ég held ég hafi ekki þolinmæðina í að animate-a eða teikna fyrir myndasögu, það er svo hrikalega mikil vinna. Það væri líka gaman að teikna fyrir barnabækur og svoleiðis :) Mig langar líka bara þegar ég verð eldri og betri að taka að mér svona ‘commission’ eða teikna eftir eftirspurn og svoleiðis, bara vinna...
Vá hvað ég er orðin drulluþreytt á fólki sem er sívælandi yfir einhverju sem skiptir það í rauninni engu máli. Ókei þú hlustar ekki á popp en þarftu að láta alla aðra í kringum þig vita? Það er ekki eins og það sé verið að neyða þig til þess að hlusta á fm, og tja kannski kemstu ekki hjá því en það er alls ekki svo erfitt að leiða hana framhjá sér er það? Með því að setja inn þennan þráð þá baðstu um meiri fm tónlist, afþví að nú kemur fullt af fólki sem talar um fm og þú býrð til umræðu um...
Vá, fyrsta myndin er svaðaleg, alveg augljóst að þér hefur farið fram, enginn smá mikill munur o_O Og já, ég verð að vera sammála supernanny og segja að hrafninn sé svalur og uglan líka, geðveikt flott augun á henni :) Vá ég nota mikið af kommum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..