Hjartanlega sammála ;/ Allar samræður hér eru alltaf að fara út í öfgar vegna þess að eitthvað leiðinda fólk er alltaf að rífa einhvern kjaft! Getur það ekki bara haldið sínum skoðunum fyrir sig!!!!
**Snökt** Helv.krakkarnir hefðu átt að fara í útgöngubann þanga til þeir gætu gefið þér annann hund! Og þó þeir mundu gefa þeir annannn hund myndi hann aldrei koma í staðinn fyrir Höskuld, er það nokkuð? Vonandi fengu þeir nógar skammir. Samhryggist***
Ég fór líka á þessa sýningu, lenti einmitt í því að sitja í tröppunum þar sem lítill krakki var með fæturnar í bakinu mínu allann tímann!! En þetta var mjög góð sýning og mikil skemmtun. Mér fannst mjög flott þetta með hundinum. þú misstir af minnir mig atriði sem var þannig að stelpur komu í svona blúndukjólum, áttu að vera frá Moulin Rouge! og svo fleiri atriði með fjölmennum hestum og stelpu sem spilaði á þverflautu (ég æfi nú á það!!=) á meðan bróðir hennar sýndi hlaup hæstanna og svo...
Já ég er sammála. Við vorum alveg ákveðin í að taka köttinn okkar úr sambandi einmitt til þess að forða öllu svona. Ég hef lent í því að heyra eitthvað hvæs og þá var bara annar kisi kominn inn að hræða heimilisköttinn! Það var líka einu sinni köttur inn í því þvottahúsi, sofandi værum blundi. Það er svo sem ekkert mikið sem eigandinn getur gert nema já, gelda og merkja kettina.
5. Fleiri gæludýr, mér finnst þau ekkert spes á killersims.com nefnilega. __________________________________________________ Hvernig nær maður í gæludýrin???
Sammála Ég meina, ef þeir hata blessuð dýrin afhverju þá að eyða tímanum á þessu áhugamál??? Plús það að þeir koma bara óorði á sig þannig að allir vita hversu mikil fífl þetta eru!!!!!
*Snökt* Samhryggist :( Ef mamman hét Macy hvað með Lucy? Eða þú getur nefnt hana eftir mömmu sinni. Vonandi á sú litla eftir að vera ykkur eins kær og móðir hennar ;) Kveðja Hegga
Ég hef það í huga ;) Ég er einmitt búið að troða körfu fullri af alls kyns kattardóti sem kisi leikur sér ekkert með, inn í þvottahús en sumir eru sko ekki ánægðir með það ;) Kveðja Hegga
Auðvitað erum við að nokkru leiti að ráða lífi katta okkar með öllu þessu. En hvað eigum við að gera? Ekki gelda þá,ekki merkja þau, láta þau ráða sínum útivistartíma sjálf eða hvað? Lady, then your looking at the missing cat!
Sumt fólk er ekki mikið fyrir félagslíf en aðrir eru yfir sig hrifnir af því! Dýr eru svo mismunandi í sínu skapi.Þín kisa getur ekki haft aðra en heimilisfólk á heimilinu sem er bara einhver félagsskítska! En það er alveg eðlilegt mundi ég halda, prufaðu að hafa samband við dýralæknir og spurðu hann;)
Ég held að þetta sé ekkert alvarlegt…..nema kannski er hún með orma eða eitthvað…………. En þeir sem eru snemma teknir í burtu frá mömmum sínum gera oft svona einhverja furðulega hluti sem þeir kunna ekki alveg á ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..