Dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fimm ára fangelsi fyrir að beita dóttur sína ítrekað kynferðislegu ofbeldi á árunum 1998 til 2004 þegar stúlkan var á aldrinum 8 til 14 ára. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 2 milljónir króna í bætur. Maðurinn neitaði sök og hélt því fram fyrir dómnum að að ásakanir stúlkunnar væru að áeggjan fyrrum fósturföður hennar. Dómurinn, sem var fjölskipaður, taldi hins vegar...