OOOhhhh…. Þetta er svo nálægt því að vera eitt það flottasta sem ég hef lesið!!! Fyrstu sex línurnar eru tær snilld að öllu leyti. Orðalag, tilfinning, meining, hrynjandi, stuðlar. Allt frábært! En sjöunda línan er slæm, verulega slæm!! (Nei ok ekki verulega slæm, ég þurfti bara að lesa hana 5-6 sinnum til að finna hrynjandina í henni og fann hana loksins en það er ekki gott, þetta á að flæða eðlilega en gerir það ekki). Lokalínan er flott nema að það er meinleysisleg ofstuðlun sem að böggar...