Já sælir, Það er eitt sem ég vildi leiðrétta í sambandi við greinina. Hann Brooks var svo vænn að hafa samband við mig og benda mér á einn hlut. Hann benti mér á það að væri betra að RÉTTA HÁLSINN FYRST MEÐ NÝJUM STRENGJUM, SVO SKELLA SÉR Í STRENGJAHÆÐINA OG SVO SÍÐAST INNBYRÐISSTILLINGUNA. Þetta er maður sem talar sínu viti og hefur meiri reynslu í hljóðfæragrúski en líklegast flestir okkar, þannig að þetta er vel þegin ábending sem ég mun tileinka. Já, alltaf lærir maður eitthvað nýtt hér...