Ég er ein af þessum týpum sem bókstaflega elska norðurljós, tunglið og stjörnurnar á himnum. Ég er það heppin að eiga hund og hans vegna uppgötvaði ég hvað þetta er fallegt og spennandi. Ég fer mikið út á kvöldin og næturnar með voffa og það klikkar ekki að ég líti uppí himinn. Í eitt skipti í ískulda og frosti henti ég hundateppinu á frosna jörðina, lagðist og horfði á norðurljósin dansa undir stjörnunum og það var geðveik upplifun. Svo langar mig að benda fólki á að skoða stjörnurnar vel,...