Ég keyrði svona bíl, kunningi minn átti hann. Hann var reyndar 93 model ef ég man rétt, en með sömu vél, 3ja dyra. Keypti hann áður en hann fékk prófið, mamma hans var á honum þangað til stóri dagurinn rann upp og ég get sagt þér það, að bíllinn byrjaði að bila, kúplingin fór, hitt og þetta, og það var ekki aftur snúið. Bílnum var ekki ekið eftir að hann fékk prófið. En í sambandi við bílinn sjálfan, þá man ég að mér fannst vélin nokkuð spræk, fínt að keyra bílinn. Ekkert út á það að setja,...